|
LÖG
NÁTTÚRUVERNDARSAMTAKA SUÐURLANDS
Endurskoðuð
í mars 2005
1. gr. Heiti
samtakanna er Náttúruverndarsamtök Suðurlands,
skammstafað NSS. Varnarþing þeirra er á Hvolsvelli.
Félagssvæðið er Suðurland; Árnessýsla,
Rangárvallasýsla og Vestur-Skaftafellssýsla.
2. gr. Öll stafsemi samtakanna skal grundvallast á pólitísku
hlutleysi og miðast við að samtökin eru málsvari
náttúrunnar, fyrst og fremst.
3. gr. Markmið samtakanna er að gæta hagsmuna náttúrunnar;
m.a. með því;
Að stuðla að verndun náttúrulegs umhverfis,
landslags, lofts, jarðmyndana, vatns, sjávar og lífríkis,
dýra og plantna og fjölgun verndaðra og friðaðra
svæða á Suðurlandi með það að markmiði
að varðveita líffræðilegan fjölbreytileika,
landslag og náttúrufarsleg sérkenni svæðisins.
Að fylgjast með ástandi verndaðra svæða og
vekja athygli á þeim (sjá náttúruminjaskrá).
Að stuðla að því að náttúruauðlindir
verði aðeins nýttar í samræmi við sjónarmið
sjálfbærrar þróunar og að hagsmuna náttúrunnar
sé ævinlega gætt þannig að hún beri
ekki þar af varanlegar skaða.
Að fylgjast með áætlunum um hvers konar framkvæmdir
sem snerta náttúruna; mannvirkjagerð, notkun tilbúinna
efna, inngrip mannsins í lífríki o.fl. og að
örva umræðu í samfélaginu umþau málefni.
Að ýta undir umfjöllun og upplýsta umræðu
meðal almennings um umhverfis- og náttúruverndarmál,
á þeim sviðum sem snerta daglegt líf og umgengni
almennings við náttúruna.
4.gr Að markmiði sínu hyggjast samtökin vinna að
m.a. með eftirfarandi hætti:
Að afla gagna um þær upplýsingar sem til eru í
samfélaginu um náttúru svæðisins, miðla
þeim og hvetja til umhverfis- og náttúrufarsrannsókna.
Að miðla upplýsingum til almennings og vekja umræðu
um náttúruna í gegn um internet og/eða fjölmiðla
Að standa fyrir fræðslu- og umræðufundum um umhverfis-
og náttúruverndarleg málefni þegar ástæða
er til (ástæða sem tekur mið af hlutverki
félagsins).
Að standa fyrir lengri og styttri fræðsluferðum á
vernduð svæði eða önnur svæði sem þykja
áhugaverð eða eru í umræðunni hverju sinni
Að vera í sambandi/samstarfi við opinbera aðila, t.d.
Umhverfisráðuneyti, Umhverfisstofnun, önnur frjáls
umhverfissamtök varðandi stefnumótun og framtíðarsýn
í náttúruverndarmálum.
5.gr . Félagið er opið öllum, er starfa vilja að
umhverfis- og náttúruvernd á félagssvæðinu.
Aðild að félaginu er bein aðild einstaklinga og styrktaraðild.
Styrktaraðilar geta orðið einstaklingar, stofnanir, fyrirtæki,
félög, félagasambönd og sveitarfélög.
Styrktaraðilar hafa ekki kjörgengi en tillögurétt
og geta sent áheyrnarfulltrúa sinn á fundi.
6.
gr. Aöalfundur fer meö æösta vald samtakanna og skal
hann haldinn fyrir marslok ár hvert. Aöalfund skal boöa
bréflega og auglýsa opinberlega með tveggja vikna fyrirvara.
Á aðalfundi leggur stjórnin fram starfsskýrslu
og endurskoðaða reikninga síðasta starfsárs.
Einnig skal ræða tillögur um næstu verkefni samtakanna,
fjárhagsáætlun, ákvarða félagsgjöld
og taka inn nýja félaga.
7. gr. Stjórn samtakanna skal kosin árlega á aðalfundi.
Hún skal skipuð 5 mönnum (a.m.k. einum úr hverri
sýslu) og 3 til vara. Einnig skal kjósa tvo skoðunarmenn.
Stjórn skiptir með sér verkum (skipar formann, varaformann,
gjaldkera, ritara og meðstjórnanda). Stjórn fer með
málefni samtakanna milli aðalfunda. Stjórn skal hafa
markmið samtakanna að leiðarljósi varðandi alla
starfsemi og opinbera umfjöllun.
Stjórnin skal leita eftir styrkjum til viðbótar við
félagsgjöld til að standa undir starfsemi samtakanna og
vinna árlega fjárhagsáætlun. Reikningsárið
skal vera almannaksárið.
8. gr. Stjórn tilnefnir aðra félagsmenn en stjórnarmenn
til starfa í samráðshóp, og er í því
tilfelli heimilt að leita til hvaða félagsmanns sem er.
Samráðshópur skal skipaður 3-6 félagsmönnum,
a.m.k. einum úr hverri sýslu. Samráðshópur
skal vera stjórninni til ráðuneytis um þau málefni
sem eru til umræðu og umfjöllunar hverju sinni. Fulltrúum
í samráðshóp er ætlað að fylgjast
með og afla sem ítarlegastra upplýsinga um náttúrufarsleg
málefni sérstaklega á sínu svæði
eða mál sem tengjast viðfangsefnum samtakanna og miðla
upplýsingum til annarra félagsmanna. Fulltrúar í
hópnum skulu víkja sæti og aðrir koma í
staðinn ef hætta er á hagsmunaárekstrum varðandi
þau málefni sem eru til umfjöllunar hverju sinni.
9. gr. Hætti samtökin störfum skulu eignir þeirra
renna til þess aðila í stjórnkerfinu sem ber ábyrgð
á friðuðum svæðum (nú Umhverfisstofnun)
og ráðstafað til kynningar á vernduðum svæðum
á Suðurlandi.
10. gr. Lögum þessum verður aðeins breytt á
aðalfundi og þarf til þess 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Samþykkt á aðalfundi samtakanna 18.04.2005
|